Flugklúbbur Selfoss

1974

27.04.2012 11:19

Vinnudagar

Nú hefur stjórn Flugklúbbs Selfoss ákveðið að taka til hendinni í brúna skúrnum sem staðið hefur á flughlaðinu undanfarin ár.  Þar inni er Aeronca TF-HRB  sem er í eigu nokkurra klúbbmeðlima og bíður uppgerðar.  
Þeir dagar sem stefnt er á að vera þarna að störfum eru sunnudagurinn 29. apríl frá kl 13, mánudagurinn 30. apríl eftir kvöldmat og þriðjudagurinn 1. maí kl 10.   Allar hendur sem eru tilbúnar að leggja þessu máli lið eru vel þegnar.  Tiltekt, endurskipulaggning, hillusamsetning og þessháttar er á verkefnalistanum.  Vonumst eftir að sjá sem flesta.
Stjórnin


31.03.2012 00:52

Sniðug heimasíða

Ritstjóri fékk ábendingu um þessa heimasíðu í liðinni viku, en þarna kemur inn fjöldinn allur af flugfréttum.

http://www.alltumflug.is   

Hvetjum flugáhugafólk til að kynna sér málið.




28.03.2012 23:59

Aðalfundi lokið

Aðalfundur Flugklúbbs Selfoss var haldinn í kvöld í húsakynnum Set á Selfossi.  Dagskrá var í nokkuð hefðbundnu formi, skýrsla formanns, skýrsla gjaldkera, kosning í stjórn, yfirlit yfir bensínsölu og önnur mál.
Það kom fram í skýrslu formanns, Helga Sigurðssyni, að einkaflug á enn undir högg að sækja og hefur dregist saman jafnt og þétt síðustu árin.  Flugklúbburinn hefur þó reynt að halda sjó í þessum efnum og þó minna hafi verið flogið, hefur ekki verið slakað á varðandi uppbyggingu á  flugvallarsvæðinu og umhverfi þess, þvert á móti. Sáning og uppgræðsla brauta er enn í fullum gangi og þykir vel hafa tekist til með braut 15/33.  Töluverð viðhaldsvinna var unnin á flugstöðinni ásamt ýmsum tilfallandi verkefnum.
Helgi skýrði fundarmönnum frá því að Gæðahandbók vallarins stæðist nú fyllilega allar kröfur ISAVIA þar að lútandi og því bæri að fagna.
Sú breyting varð á stjórn, að Hannes Garðarsson, stjórnarmaður til fjölda ára og nú síðast varaformaður kaus að stíga frá, en í hans stað kemur Kári Jónsson inn sem meðstjórnandi, en Hjörtur Hauksson tekur við af Hannesi sem varaformaður.  Helgi Sigurðsson gaf kost á sér amk eitt kjörtímabil enn í formennsku.
Nokkrar snarpar umræður voru teknar undir liðnum önnur mál, og því næst var fundi slitið.  Einar Elíasson sá til þess að allir fengju molasopa að fundi loknum.   Myndir frá fundinum eru komnar inn.


   Stjórn Flugklúbbs Selfoss fyrir komandi starfsár. F.v Hjörtur, Kári, Þórir, Helgi, Walther


                                          Ómar og Guðjón að spá í hlutina.

04.03.2012 10:48

Aðalfundur 2012

Þá er komið að hinum árvissa aðalfundi Flugklúbbs Selfoss, en hann verður haldinn fimmtudaginn 29. mars kl 20 í húsakynnum SET á Selfossi.  Venjuleg aðalfundarstörf og starfið á komandi tímabili rætt og skipulagt.  Hvetjum alla félaga til að mæta.   Kaffi og kruðerí í hléi.

Fyrir hönd stjórnar
Þórir Tryggvason
gjaldkeri.

20.02.2012 08:01

Ferðaþjónustukynning

Laugardaginn 4.febrúar síðastliðinn, héldu sunnlensk ferðaþjónustufyrirtæki ferðakaupstefnu í flugskýli 1 á Selfossflugvelli. Fjöldi erlendra ferðaþjónustuaðila bæði frá Evrópu og Bandaríkjunum mætti á staðinn til að kynna sér hvað Suðurland hefði uppá að bjóða fyrir ferðaþjónustutengda starfsemi.

Meðal annars kynnti  Norðurflug þyrluflug frá Selfossflugvelli um Suðurland og inn á hálendið.

Flugfélagið Ernir hugðist einnig kynna sína starfsemi frá Selfossflugvelli í sumar, enn ekki viðraði til kynningaflugs að þessu sinni. 

 

Einar Elíasson tók eftirfarandi myndir þegar kynningaraðilar voru að koma sér fyrir í flugskýlinu með sín gögn.

            

             

19.02.2012 23:34

Ljósmyndasíða Einars

Nú hefur félagi okkar  í Flugklúbbi Selfoss, Einar Elíasson útbúið ljósmyndasíðu, en þar má finna hluta af þeim ljósmyndum sem hann hefur tekið úr lofti síðustu árin.   Þarna kennir ýmissa grasa, en Einar hefur verið duglegur með myndavélina á ferðum sínum í TF-PJE.   Slóðin á síðuna er http://einar.set.is
Flugklúbbur Selfoss óskar Einari til hamingju með áfangann og hvetur flugáhugafólk til að skoða nýju síðuna.

  • 1
Flettingar í dag: 112
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 471
Gestir í gær: 77
Samtals flettingar: 509531
Samtals gestir: 112930
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 12:40:43

Veðrið á Selfossflugvelli


Ritstjóri heimasíðu:
Þórir Tryggvason, sími 892 3957
Ábyrgðarmaður:
Helgi Sigurðsson, sími 896 3406
Hafa samband:
akk@simnet.is

Tenglar