Flugklúbbur Selfoss
Til baka í fréttir

Nýr vefur Flugklúbbs Selfoss kominn í loftið

Á nýjum vef klúbbsins má skoða myndavélar og veðurmælingar, finna upplýsingar um Selfossflugvöll og sækja um félagsaðild.

Við höfum opnað nýjan vef Flugklúbbs Selfoss. Þar höfum við safnað saman upplýsingum fyrir flugmenn, félagsmenn og gesti Selfossflugvallar.

Myndavélar og veður

Skoðaðu nýjustu myndir og veðurmælingar frá vellinum á síðunni Myndavélar og veður. Birtingin uppfærist sjálfkrafa og sýnir tíma síðustu uppfærslu.

Flugvöllurinn og eldsneyti

Á vefnum finnur þú yfirlit yfir Selfossflugvöll, tengla á opinberar flugupplýsingar og eldsneytisverð. Félagsmenn geta einnig sótt um bensínlykil.

Klúbburinn og sagan

Kynntu þér starf klúbbsins, stjórn og félagslög. Þar má einnig lesa um uppbyggingu Selfossflugvallar og sögu Pétursbikarsins.

Fréttir og viðburðir

Við birtum fréttir af starfinu og upplýsingar um fundi, viðburði og keppnir á vegum klúbbsins.

Vertu með

Allt áhugafólk um flug er velkomið að sækja um félagsaðild í gegnum vefinn.

Ef þú rekst á villu eða saknar upplýsinga skaltu endilega láta okkur vita í gegnum sambandseyðublaðið.

Sjáumst á vellinum!